Fara í efni

Sólborg fær nýtt hlutverk í þágu barna og ungmenna í Suðurnesjabæ

Sólborg fær nýtt hlutverk í þágu barna og ungmenna í Suðurnesjabæ

Á næsta skólaári mun Sólborg gegna nýju hlutverki. Mun þjónusta við börn og ungmenni sem hefur verið í nokkrum húsnæðum færast undir eitt þak. Markmiðið með breytingunum er að skapa samfellda umgjörð fyrir frístunda- og tómstundastarf þar sem börn og ungmenni hafa aðgang að fjölbreyttum úrræðum á einum stað.

Með breytingunum verður starfsemi skólasels, Skýsins og félagsmiðstöðvarinnar Skýjaborgar sameinuð. Þannig skapast tækifæri til að efla þjónustuna, bæta aðstöðu fyrir notendur og mæta betur þeim þörfum sem fylgja vaxandi samfélagi og fjölgun barna í sveitarfélaginu.

Skýið er eftirskólaúrræði fyrir nemendur í 5.–10. bekk með fötlun og mun ný aðstaða styðja við þá mikilvægu starfsemi. Jafnframt skapast meira og hentugra rými fyrir félagsstarf ungmenna og fjölbreytt tómstundastarf.

Aðstaða skólasels fyrir börn í 1.-4.bekk mun flytjast frá Sandgerðisskóla yfir í Sólborg og verður aðstaðan rýmri og betur til þess fallin að styðja við leik, nám og samveru eftir skólatíma.

Hluti húsnæðisins í Sólborg hefur undanfarin misseri verið nýttur undir starfsemi Fiskitækniskólans. Hafa þau flutt starfsemi sína aftur til Grindavíkur og mun þá sá hluti húsnæðisins nýtast börnum og ungmennum sveitarfélagsins.

Til að undirbúa þetta nýja hlutverk Sólborgar standa nú yfir umfangsmiklar endurbætur á eldri hluta húsnæðisins. Við framkvæmdina er farið ítarlega yfir húsnæðið í heild sinni og ráðist í þær lagfæringar og endurbætur sem nauðsynlegar eru til að tryggja öruggt húsnæði fyrir þjónustuna. Nýrri hluti Sólborgar hefur þegar verið endurbættur með sama markmið að leiðarljósi. Suðurnesjabær leggur áherslu á að allar framkvæmdir séu unnar af fagmennsku og í samræmi við ráðgjöf sérfræðinga þannig að öryggi, heilsa og velferð barna séu ávallt í fyrirrúmi.

Það er von Suðurnesjabæjar að þessi uppbygging muni styrkja þjónustu sveitarfélagsins til framtíðar og skapa enn betri aðstæður fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra.